
Fáðu Takk krónur til baka
Takk er skemmtilegt vildarsamfélag þar sem þú safnar Takk krónum þegar þú verslar Takk vörur í Hagkaup, Bónus og Eldum rétt.
Svona virkar Takk
- Loading animation...Sæktu Takk appið í símann
Þú bætir Takk kortinu við veskið í símanum þínum áður en þú verslar hjá Hagkaup, Bónus og Eldum rétt.
- Loading animation...Fáðu Takk krónur til baka
Þegar þú verslar Takk vörur hjá Hagkaup, Bónus og Eldum rétt safnar þú Takk krónum inn á Takk kortið þitt. Þú einfaldlega auðkennir þig á posa með Takk kortinu þínu áður en þú greiðir.
- Loading animation...Notaðu Takk krónur til að versla
Þú getur notað Takk krónurnar þegar þú verslar hjá Hagkaup og Bónus. Ein Takk króna jafngildir einni íslenskri krónu í verðgildi þegar hún er notuð í verslun.
Hvernig virkar Takk
Þú færð meira til baka með
Takk er skemmtilegt vildarsamfélag í appi. Vildarvinir geta safnað afslætti sem við köllum Takk krónur (tkr) þegar þeir versla Takk vörur hjá Bónus, Hagkaup og Eldum rétt. Takk krónurnar geta þeir svo notað næst þegar þeir versla hjá Hagkaup og Bónus. Í appinu má líka finna fjölda spennandi tilboða hjá samstarfsaðilum, þar á meðal Glans, Lemon og Grill 66. Að auki er hægt að skrá sig á skemmtilega viðburði og taka þátt í fjölbreyttum leikjum.
Algengar spurningar
Takk er skemmtilegt vildarsamfélag í appi þar sem þú færð einfaldlega meira til baka.
Þú safnar Takk krónum (tkr) þegar þú verslar Takk merktar vörur í Bónus, Hagkaup og Eldum rétt sem þú getur síðan notað í næstu búðarferð. Í Takk appinu er einnig að finna fjölbreytt tilboð, til dæmis hjá Lemon, Grill 66 og Glans, auk skemmtilegra leikja og viðburða.
Þú einfaldlega sækir Takk appið í App store eða Play store.
Afslættir í vildarsamfélaginu eru kallaðir Takk krónur (tkr) og vildarvinir geta áunnið sér (tkr) þegar Takk vörur eru verslaðar hjá Hagkaup, Bónus og Eldum rétt. Ein Takk króna (tkr) jafngildir einni íslenskri krónu (ISK) í verðgildi þegar hún er notuð í verslunum Bónus og Hagkaup.
Takk vörur koma inn vikulega og þú safnar Takk krónum af þeim. Gildistími tilboða stendur á vörunni í appinu.
Í verslun auðkennir þú þig á posa með Takk kortinu þínu við kaup á Takk merktum vörum. Takk kortið færðu í veskið í símanum þínum úr Takk appinu.
Sjálfsafgreiðslukassar: Í verslunum Bónus og Hagkaups eru skýrar leiðbeiningar á kössunum en skrefin eru eftirfarandi;
1.) Þú smellir á Takk merkið á kassa ("Innskrá"). Þetta má gera hvenær sem er í kaupferlinu fyrir greiðslu.
2.) Þú leggur símann að posanum og skráir þig þannig inn með Takk kortinu þínu.
Kassi með starfsmanni:
1.) Starfsmaður virkjar Takk á posa.
2.) Þú leggur símann að posanum og skráir þig þannig inn með Takk kortinu þínu.